Sindri Guðlaugs
SINDRI GUÐLAUGS
BRÚÐKAUPSMYNDBÖND




UM MIG
Ég er kvikmyndagerðarmaður og hef tekið upp og unnið brúðkaupsmyndbönd frá árinu 2019. Auk þess hef ég reynslu úr kvikmynda- og sjónvarpsbransanum, þar sem ég hef starfað sem framleiðandi, aðstoðarleikstjóri, tökumaður og klippari.
Nálgun mín er nærgætin og lítið áberandi. Ég vil að brúðhjón og gestir geti notið dagsins án þess að upptökuvélin taki yfir, um leið og ég fanga bæði stóru stundirnar og litlu augnablikin sem auðvelt er að missa af.
Ég sé sjálfur um allt ferlið, frá undirbúningi og upptöku til klippingar, hljóðvinnslu og litgreiningar. Markmið mitt er að skapa persónulegt og vandað verk sem varðveitir stemningu dagsins og augnablikin sem skipta mestu máli.
SÝNISHORN
Hér má sjá brot úr nokkrum brúðkaupsmyndböndum sem ég hef unnið að.
Hafið endilega samband ef þið viljið sjá myndbönd í fullri lengd.
VERÐSKRÁ
Hér finnur þú yfirlit yfir helstu pakkana og verð fyrir brúðkaupsupptöku.
Athugið: Verðin gilda fyrir brúðkaup á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess.

Athöfn
-
Samantektarmyndband af athöfninni.
-
Samantektarmyndbandið einnig afhent í lóðréttu sniði fyrir samfélagsmiðla.
-
Valdar kyrrmyndir (e. stills) úr samantektarmyndbandinu.
189.000 kr.

Athöfn og veisla
-
Samantektarmyndband af athöfn og veislu.
-
Samantektarmyndbandið einnig afhent í lóðréttu sniði fyrir samfélagsmiðla.
-
Valdar kyrrmyndir (e. stills) úr samantektarmyndbandinu.
329.000 kr.

Dagurinn í heild
-
Samantektarmyndband af undirbúningi, athöfn og veislu.
-
Samantektarmyndbandið einnig afhent í lóðréttu sniði fyrir samfélagsmiðla.
-
Valdar kyrrmyndir (e. stills) úr samantektarmyndbandinu.
449.000 kr.
Öll verð eru með virðisaukaskatti.

UMMÆLI
Brúðkaupsmyndbandið okkar frá Sindra fór langt fram úr öllum væntingum. Hann var einstaklega faglegur, skapaði þægilegt andrúmsloft og fangaði hvert einasta sérstaka augnablik í stórkostlegum gæðum.
Við fengum Sindra í brúðkaupið okkar í sumar og ég í alvörunni gæti ekki mælt meira með honum! Algjör fagmaður og brúðkaupsmyndbandið ómetanlegt
Chloe & Ingvi
Sólborg & Magnús
Við vorum svo ánægð með hvernig Sindri náði að grípa stemninguna allan daginn. Myndbandið er bæði fallegt og skemmtilegt og við getum ekki beðið eftir að sýna ættingjum og vinum.
Þorbjörg & Hilmar
HAFA SAMBAND
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða óskar eftir frekari upplýsingum um þjónustuna er þér velkomið að hafa samband.
Einnig getur þú sent mér tölvupóst beint á brudkaup@sindrigudlaugs.is.
© Sindri Guðlaugs - Brúðkaupsmyndbönd